Tuesday, November 27, 2007

Stebbi svali

Vaknaði allt of snemma í morgun við ógurlegt væl og harmakvein frá honum Stefáni mínum. Ég hentist fram úr rúminu til að athuga hvað væri eiginlega í gangi en sá ekki neitt í myrkrinu. Þá læddist ég fram og opnaði útidyrnar og þar fyrir utan stóð hann Stefán minn öskuillur út í óboðinn gest í garðinum. Ég benti Stefáni vinsamlegast á að hætta þessu grenji og koma inn, og í sama mund flúði óvinurinn. Eftir smá fortölur um að Stefán ætti að koma sér inn lét hann loksins segjast og þá sá ég að hann var allur blóðrisinn í andlitinu. Skinnið mitt litla hafði þá lent í átökum við að verja húsið sitt sem enginn annar köttur má láta sjá sig nálægt. Já hann Stefán minn er hörkutól.

1 Comments:

At November 28, 2007 8:38 AM, Anonymous Anonymous said...

Æi litli snáðinn.

Kveðja frá Vallarheiði

 

Post a Comment

<< Home