Saturday, November 24, 2007

Karlmannslaus í kulda og trekki
kúri ég volandi.....

Enn og aftur stingur Njörður af, í þetta sinn til Finnlands. Þessar vinnuferðir eru farnar að verða grunsamlega margar, sérstaklega þegar þær eru alltaf til norðurlandanna. Held að ég fari að bregða mér eitthvert í húsmæðraorlof. Hver vill taka að sér þreytta úrilla húsmóður!!!???

Nóg að gera á næstunni. Skil á verkefni í vikunni, jólaglögg x2, spilakvöld, próf og jólastúss. Dagarnir líða á ógnarharaða og mig vantar tvær vikur í viðbót inn í nóvembermánuð.
Þar til næst, ekki missa ykkur í jólastressinu!!

3 Comments:

At November 24, 2007 8:13 PM, Anonymous Anonymous said...

Sæl KolbrúnokkarVilhjálms!

Alltaf nóg að gera hjá þér. Skemmtileg umræðan um Trix, sérstaklega innskot Njarðar um hollustu þess. Ég verð að viðurkenna að ég þurfti að rifja upp hvernig Trix var og fattaði að ég ruglaði því við Lucky Charms sem var annað ágætt morgunkorn. Mikið hefði ég viljað komast á þessa tónleika með Ný Dönsk (hvernig sem maður nú beygir það).

Bið að heilsa,
Linda.

 
At November 24, 2007 9:36 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ frænka
Er þetta ekki bara spurning um að taka passann og visa kortið af kallinum ? Það virkaði allavega á þessu heimili..... nei nei smá grín;-) ég fæ kortið einu sinni í mánuði en þá bara til að kaupa handa henni skó ;-)

Kveðja í kotið
Höddi og Þórunn

 
At November 27, 2007 7:04 PM, Anonymous Anonymous said...

Hvada, hvada ... er kominn upp a hotel og kl. er bara 21:00. Ekki mikid til ad hafa ahyggjur af.

Hälsinger fra Helsingfors

 

Post a Comment

<< Home