Af hinu og þessu
Úfff kominn nóvember og tíminn líður allt of hratt. Er samt aðeins byrjuð að læra þó það hafi farið hægt af stað. Lauk starfsþjálfun í vikunni svo nú fer ég að einbeita mér að lestrinum. Nóg til af sælgæti til að maula með því Njörður var að koma frá Danmörku. Lesturinn hlýtur því að ganga betur.
Munið þið eftir morgunkorni sem heitir Trix? Njörður borðaði alltaf Trix í öll mál þegar hann var lítill. Þessi dýrindis morgunverður hefur ekki verið til á Íslandi svo árum skiptir en Nirði áskotnaðist einn pakki þegar vinur hans fór til USA um daginn. Svona ykkur að segja er Trix ennþá alveg eins á bragðið en liturinn hefur heldur betur verið bættur. Kúlurnar eru svo hræðilega skærlitaðar að ég er viss um að maður kúkar í litum ef maður borðar heila skál. Umm.
Svo fórum við á Ný Dönsk tónleika. Vaáá hvað það var gaman. Þeir tóku öll gömlu góðu lögin sem maður söng hástöfum í stigapartýum í ML ásamt nýrri og glænýjum lögum. Þeir voru ótrúlega flottir og besta var þegar Daníel Ágúst mætti á svæðið. Ótrúlegt hvað það kemur flott rödd út úr þessum vesæla kroppi sem hann nú ber. En hann hafði engu gleymt. Já þetta var tilbreyting frá öllu öðru daglegu amstri.
Börnin dafna og Daníel gengur alltaf jafn vel í skólanum. Hann hefur róast heilmikið snáðinn minn og farinn að þroskast svo mikið. Jónína er hins vegar algjör skotta og tekur sín frekjuköst á foreldrana þegar henni hentar. Er samt eins og ljós alls staðar annars staðar svo það er ágætt að hún taki þetta út á foreldrunum.
Þar til næst, góðar stundir....

4 Comments:
Þess má geta að það eru 12 vítamín í Trixi sem eru nauðsynleg líkamanum og í Trixi fær maður einnig mikið af kalki sem byggir upp bein og tennur! Trix er því hollt morgunkorn og algjörlega óskiljanlegt af hverju þetta fæst ekki lengur á Íslandi!
Ég hef ekki hugmynd um hvað Trix er, enda er ég ennþá svo ung. Man ekki eftir því sama og gamla fólkið ;)
En annars bara að kvitta fyrir mig.
Mikið er ég sammála þér Njörður. TRIX ER HOLT AÐ ÓGLEYMDU AÐ VERA GOTT. Maður fékk nú bara vatn í munninn við tilhugsunina um að til væri a.m.k. 1 pakki á landinu. Þegar ég var lítil voru þetta einmitt skærlitaðar kúlur en svo voru litarefnin minnkuð,enn ljuft að það se komið aftur.... bara láta sig dreyma um eina ameríkuferð og TRIX....
Kúkalitur skiptir ekki máli það er bragðið sem fer í munninn...he he
He he ég gleymdi að segja til nafns hér áðan... ha ha ha enn það var ekki leyndamálið... ég var bara við hugan við þetta GÓÐA TRIX...
kv. Ásta Lóa
Post a Comment
<< Home