Hreinsað út!!!
Best að henda hér inn nokkrum línum þar sem ég var að koma endurnærð inn eftir góðan göngutúr. Löbbuðum fjölskyldan upp í Ölfusborgir og gáfum nokkrum öndum brauð sem við hittum á leiðinni.
En þrátt fyrir allt þetta góða loft sem ég fékk í lungun á leiðinni er ég búin að furða mig mikið á allri spillingunni á þessu litla landi. Verðsamráð í stórmörkuðum, allt of háir vextir og hækka enn, markaðsverð og leiguverð á húsnæði, eina landið þar sem dísill er hærri en bensín, virkjanir, virkjanir, virkjanir??? Og hvað er að Íslendingum þegar kemur að opnun nýrra verslana. Ég hreinlega skammast mín fyrir að vera Ísleningur þegar við erum næst á eftir Tokyo í eyðslusemi í búðum. Hvað er að??? Er ekki kominn tími til að pakka saman og prófa eitthvað annað land. Þá hefur maður a.m.k. samanburð þegar maður lætur allan fjandann fara í taugarnar á sér.
Já gott að pústa svona öðru hverju.
Annars allt gott!!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home