Þoli ekki Íslenska álagningu!!
Ég pirra mig oft yfir óþolandi verðlagi á Íslandi og sá eitt gott dæmi um það í dag. Svíþjóð er nú oft talið með dýrari löndum en í Ecco skóbúð þar fann ég draumaskóna mína og ákvað að kaupa þá þrátt fyrir að þeir kostuðu um 10.000 ísl. krónur. Svo var ég að þvælast í Kringlunni í dag og gekk fram hjá Ecco búðinni. Þar í glugganum stóð eins skópar og fínu skórnir mínir en nú kostuðu þeir rétt tæpar 15.000 krónur. Hvernig stendur á því að sama framleiðsla þurfi að vera 50% dýrari í einu landi en öðru? Hver er sökudólgurinn? Eru Íslendingar svona gráðugir að þeir þurfa að smyrja heilmingi meira á vöruna en aðrar þjóðir? Mér finnst þetta til skammar en brosi innra með mér yfir að hafa verið svo sniðug að kaupa skóna góðu í Svíþjóð.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home