Nokkrir molar úr ferðinni
Þá er maður kominn heim úr sælunni í Svíþjóð. Samt gott að koma heim. Við skoðuðum og gerðum heilmargt en heimsókn Hönnu, Finns og barna setti enn skemmtilegri svip á ferðina. Takk fyrir heimsóknina kæru vinir. Þar sem við vorum einnig með tengdó í för varð þetta svolítið eins og að vera með fjögur börn. Auka-börnin okkar gátu verið svolítið erfið á köflum enda annað hálf heyrnarlaust og hitt hálf fótalaust. En í heildina gekk þetta alveg ljómandi vel og stóráfallalaust fyrir sig.
Við skoðuðum Stokkhólm, fórum í tívolí, á ströndina, skoðuðum Astrid Lindgren safnið, fórum í siglingu og í stórskemmtilegan dýragarð svo lítið eitt sé nefnt. Svo er maður auðvitað búinn að éta á sig gat og missa sig í H&M.
Vorum heppin einn daginn að bíllinn okar yrði ekki dreginn í burtu í miðbæ Stokkhólms. Höfðum farið í stutta bæjarferð einn daginn og fundið þetta fína bílastæði alveg í miðbænum. Daginn eftir fórum við svo aftur inn í Stokkhólm og ákváðum að prófa aftur að fara á sama stað. Og viti menn, laust þetta fína stæði. Við borguðum samviskusamlega í automatinu og dvöldum svo nokkra klukkutíma í miðbænum. Þegar við svo komum til baka kom lögregluþjónn og spurði hvort við ættum þennan bíl. Við játtum því auðvitað. Þá var stranglega bannað að leggja þarna því þetta var sérmerkt lögreglustæði. Við urðum auðvitað eins og asnar og lékum heimska útlendinga sem þóttust ekki hafa séð merkinguna (sem var reyndar satt). Sáum eitthvað skilti en skildum bara ekkert hvað stóð á því. En sem betur fer var þetta almennileg lögga og bað okkur bara vinsamlegast að drífa okkur í burtu :-)
Eins og ég sagði áður frá var húsið mjög fínt. Stórt og mikið hús með fallegum garði. Set hér nokkrar myndir um leið og ég hef sett þær inn. Við erum sem sagt endurnærð eftir gott frí.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home