Tuesday, August 21, 2007

Af hverju er himininn blár?

Njörður var að kveina yfir því að ég væri lélegur bloggari sem bloggaði allt of sjaldan svo það er best að bæta úr því sem snöggvast enda allt að gerast.

Þá er vinnan byrjuð aftur og allt komið á fullt. Næstu tvær vikurnar ætla ég að njóta þess að vera bara í vinnu, svo tekur skólinn við. Kvíði eiginlega svolítið fyrir að byrja aftur í skólanum, er ekki búin að gleyma hvað ég var alltaf þreytt síðasta vetur. En þetta verður samt tekið með trompi og ég mun útskrifast sem náms- og starfsráðgjafi næsta vor. Er meira að segja í nokkrum prósentum sem námsráðgjafi í vetur. Spennandi.

Svo er bara grill og djamm framundan. Blómstrandi dagar og ball með Sniglabandinu. Börnin mín blómstra líka, rútínan þeirra að byrja aftur og þau eru bara glöð með það. Daníel að fara í þriðja bekk. Hann er mikill spekingur og er alltaf að spyrja allskyns spurninga sem erfitt er að svara. Fæ oft lagið með honum Ara sem vill vita allt þegar minn maður byrjar. T.d. hvað er fyrsta íslenska orðið sem var til og hvað er fyrsta lagið sem var búið til. Ef þið vitið svörin þá megið þið láta mig vita :-)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home