Loksins útilega
Þá er ég komin úr útilegu. Fór í Húsafell ásamt fríðu föruneyti með dúkkuhjólhýsi í eftirdragi sem tengdapabbi vildi endilega lána mér. Það gekk nú bara nokkuð vel að keyra og yndislegt að geta sofið svona "inni" í útilegu. Mér finnst ég ekki eins lúin og oft þegar maður kemur úr útilegu. Njörður kom ekki með mér þar sem hann var á ráðstefnu í RVK en hann kom seinna og gisti eina nótt. Þetta var hálfgert ættarmót þar sem við vorum nokkur saman, lömbin hans afa heitins eins og hann kallaði okkur. Við skoðuðum Surtshelli og fórum í sund. Takk fyrir helgina öll sömul.
Annars hef ég lítið gert nema slaka á síðan við komum heim frá Svíþjóð. Hélt upp á afmælið hennar Jónínu og hún var svaka glöð með daginn. Búið að klára pallinn, ekkert smá flottur. Kallinn kemur sífellt á óvart með handlagni sinni he he. Allt tilbúið fyrir grillveislu á Blómstrandi dögum síðustu helgina í ágúst.
Svo byrjar vinnan aftur í vikunni. Gaman.

3 Comments:
takk sömuleiðis fyrir helgina, hún var frábær í alla staði. yndislegt að sjá fólkið sitt svona öðru hvoru ;)
Kveðja Ingibjörg ösp og baunin;)
takk fyrir Helgina hún var frábær og alveg æðislegt að fara í útilegu með ykkur ;P....
kv.Helga Hrund
Já einmitt takk fyrir þessa frábæru helgi.... takk fyrir að fá að vera með..... :)
kv. Ásta
Post a Comment
<< Home