Monday, May 28, 2007

Yndislega Laugarvatn

Ég hef þau forréttindi að júbilera á Laugarvatni tvö ár í röð á fjögurra ára fresti. Á laugardaginn hitti ég sem sagt minn rétta útskriftarhóp og það var bara gaman. Ég hef sorglega lítið samband við þessa krakka og því frábært fyrir mig að sjá öll þessi andlit aftur. Tók samt ákvörðun þetta árið að vera góð stelpa og halda heim áður en kæmi fram á morgun. Ekki víst að ég verði svo skynsöm næst þegar ég mæti á svæðið enda erfitt að fara í burtu þegar mesta fjörið er að byrja.

Fer með bekkinn minn í skólaferðalag á miðvikudag í tæplega tvo sólarhringa. Það verður vonandi skemmtilegt, spáin a.m.k. góð fyrir útiveru.

Svo er Holland eftir rúmlega viku. Dagarnir hafa liðið hratt undanfarið svo þetta styttist óðum.

Húsið mitt er komið á sölu ef einhver hefur áhuga, Njörður er búinn að hamast alla hvítasunnuna við að dytta að hinu og þessu til að allt verði sem best ákosið fyrir tilvonandi kaupendur.

Senn líður að sumarfríi, lifið heil!

2 Comments:

At May 28, 2007 9:43 PM, Anonymous Anonymous said...

Ohh....öfunda þig. Hugsaði til ykkar á laugardagskvöldið og langaði að endurtaka leikinn frá síðasta ári. En bara 4 ár í næsta reunion. Jei.
Kyss.

 
At June 03, 2007 2:58 AM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir síðast elsku Kollan mín.. þetta var svoooo gaman :)
Matta

 

Post a Comment

<< Home