Sunday, May 20, 2007

Fréttir

Takk fyrir góðar kveðjur. Já það er sko engin lognmolla í kringum mann þessa dagana. Maður er ekki fyrr búinn með einn áfanga en næsti tekur við. Það stóð nefnilega til að smíða stærðarinnar pall hér framan við húsið, en við hættum snarlega við það og ætlum í staðinn að selja húsið. Við höfum fengið staðfest tilboð sem við gerðum í draumahús í Dynskógum og ætlum því að láta vaða. Stærðarinnar hús með tveim pöllum og stórum bílskúr, svo er þetta auðvitað réttu megin við Breiðumörk!!! (Svo segir Njörður). Þetta er auðvitað allt gert með fyrirvara um að við náum að selja okkar hús svo þetta á allt eftir að koma betur í ljós. En ég er voða spennt.

6 Comments:

At May 21, 2007 12:02 AM, Anonymous Anonymous said...

Spennó! Til hamingju kæra.
Svanhildur

 
At May 21, 2007 1:21 PM, Anonymous Anonymous said...

Nohh... það eru aldeilis fréttir! Ég kíki þá til þín ef mig langar í sólbað ;)

 
At May 22, 2007 6:19 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með húsið og með stóra áfangann í náminu, þú getur sko sannarlega verið stolt af sjálfri þér!

Kveðja frá Danmörku,
Dóra Hanna

 
At May 23, 2007 1:54 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með allt. Réttu megin við Breiðumörkina.... hummmm?????
Kv. Júlía

 
At May 23, 2007 4:54 PM, Anonymous Anonymous said...

Ja hérna, það er aldeilis -- gaman að þessu :-)

 
At June 01, 2007 12:19 AM, Blogger Fanney said...

Ég frétti að ég ætti að kaupa þitt hús??? Ég er svona eins og Njörður - það er ekki sama hvoru megin maður er. Annars er ég ekkert á leiðinni í Hveró - allavega ekki í dag :-) (get ekki ákveðið mig). Þú verður i næsta nágrenni við mitt æskuheimili - ekki slæmt.

 

Post a Comment

<< Home