Friday, May 04, 2007

Birtir til á ný

Já maður er ekki undra-hundur fyrir ekki neitt. Er að komast í gegnum heimaprófið og ritgerðina, aðeins eftir að setja lokahönd á bæði verkin. Þá get ég farið að lesa fyrir próf. Gaman gaman, bara tæp vika eftir af mesta erfiðinu.
Er farin að telja niður fyrir Hollandsferð. Er jafnvel búin að læra nokkur vel valin orð á hollensku:
Een appel is rood=eplið er rautt
de zon is geel= sonurinn úr geli
de hemel is blauw =hemlarnir blautir
een blad is groen =blaðið grænt
en wolk is wit= fólkið viturt
en de aarde is bruin= arðan bráðnuð
en zou je nu kunnen antwoorden op de vraag welke kleur de liefde.=gæti ég fengið svefnpillur því herbergisfélaginn minn hrýtur.
Geri aðrir betur.
Lifið heil
Kolla ofurkona

1 Comments:

At May 04, 2007 11:57 PM, Anonymous Anonymous said...

Meikar sens.... en sonur úr geli?

 

Post a Comment

<< Home