Tel niður
Tveir dagar. Á sama tíma eftir tvo daga ætla ég að flatmaga uppi í sófa, horfa á Eika meika Eurovision og drekka bjór.
Hlakka mikið til.
Finnst ég vera að læra læknisfræði frekar en náms- og starfsráðgjöf þar sem ég þarf að læra utanbókar greiningarviðmið hinna ýmsu sjúkdóma og geðraskana. Allt mjög fróðlegt og gáfulegt, en...........þoli ekki svona páfagauka lærdóm. Er t.d. ekki með geðklofa þó ég heyri raddir um að ég geti ekki meir. Það þarf víst meira til, þarf t.d. að hafa heyrt þessar raddir í 6 mánuði. Er bara búin að vera í faginu í 4 mánuði. Hjúkk.
Væri samt alveg til í að vera með Asperger og vera með áráttu fyrir greinigarviðmiðum. Vá hvað mér myndi þá ganga vel!!!
Best að halda áfram að læra og hætta þessu bulli.

1 Comments:
Hafðu það gott uppí sófa í kvöld :-)
Post a Comment
<< Home