Ég og vinnan mín
Það er fimmtudagsmorgun og ég er ekki í vinnunni. Ég sit í makindum heima hjá mér og er að reyna að vera dugleg við að læra. Og af hverju er ég ekki í vinnunni? Jú, það er langþráð vetrarfrí. Ég nota tímann og vinn upp alla fyrirlestrana sem ég hef ekki haft tíma til að horfa á. Yndislegt.
Seinna í dag fer ég svo á minn fyrsta fjarfund. Er frekar kvíðinn þar sem ég á að vera tilbúin með gáfulega spurningu úr efninu. Er ekki viss um hversu gáfuleg hún verður. Finnst ég frekar vitlaus í þessu annars áhugaverða efni um starfskenningar og þróun þeirra. Af hverju valdi ég t.d. að verða kennari. Var það vegna óbilandi áhuga á starfinu eða var það bara eitthvað sem hentaði? Hvernig velur maður starfið sitt?
Ákvað að leyfa Höllu Vilhjálms að hafa ofan af fyrir Jude, enda miklu auðveldara fyrir hann að bera fram Halla en Kolbrún. Svo er ég líka gift manni sem lítur út eins og poppstjarnan Ronan Keating. Can I ask for more???


0 Comments:
Post a Comment
<< Home