Ég er búin að vera alveg rosalega dugleg. Fór loksins af stað í að læra eitthvað af viti og búin að vinna upp alla fyrirlestra sem ég átti eftir. Það fer nefnilega þannig fram í náminu mínu að fyrirlestrarnir eru teknir upp í staðnáminu og svo sitjum við fjarnemar í leti heima í stofu og horfum á. En það er mjög auðvelt að gleyma sér í einhverju allt öðru og eiga svo marga klukkutíma af fyrirlestrum sem á eftir að horfa á og glósa. En nú er ég komin á rétt ról svo það skal haldast þannig út önnina.
Annars eru bara búin að vera veikindi á heimilinu. Litlu krílin mín bæði búin að liggja. Daníel í síðustu viku og svo vakti Jónína okkur í nótt með þessari ilmandi ælupest. En hún er nú öll að koma til og jafnar sig vonandi fljótt.
Ætla að hugsa mig tvisvar um áður en ég fer aftur í Selfossbíó. Sat þar í nístingskulda með rautt nef og kaldar tær því hitakerfið var bilað!!! Af hverju er verið að halda uppi sýningum á fullu verði við svona aðstæður? Ja maður spyr?

0 Comments:
Post a Comment
<< Home