Sumir eru svo skrítnir
Ég fékk skrítna símhringingu um daginn. Til mín hringdi önug kelling og spurði hvort ég ætti son sem heitir Daníel. Ég játti því og þá sagði hún að ég skildi sko gjöra svo vel og koma syni mínum í skilning um að hann ætti sko ekki að labba á graskantinum fyrir utan húsið hennar. Þetta er eimhver ljótur kantur úr torfi sem er einsog í staðinn fyrir girðingu. Ég var hin kurteisasta og baðst afsökunar og þetta kæmi nú ekki fyrir aftur. En kellingin var ekki hætt, sagði að ef þetta kæmi fyrir aftur þá færi hún sko með þetta lengra (hvert sem það nú var). Ég minnti konugreyið á að þetta væri nú bara lítill strákur sem vissi ekki betur en þá sleppti kellingin sér alveg. Gargaði á mig í símann að þetta færi sko lengra ef þetta kæmi fyrir aftur og lét öllum illum látum. Svo skellti hún á mig.
Seinna um kvöldið frétti ég svo að hún hafði líka hringt í foreldra vinar hans Daníels og lét öllum illum látum þar líka. Sá drengur hafði ekki einu sinni farið upp á kantinn!! "Hann sýndi sko tilburði til þess" hafði kellingin þá sagt. Það sem sumir geta einbeitt sér að því að gera sér lífið erfitt. Sumir leita uppi vesen og búa til vandamál úr engu. Hvernig nennir fólk þessu?

2 Comments:
Blessuð og sæl, takk for sist (alveg næstum 2 mán síðan:o))
Sko ég kíki stundum við hérna.
Ég heyrði af því að þú hafir verið með svo skemmtilegt spilakvöld í vinnunni hjá þér og þar var víst svo skemmtilegur leikur. Mamma mín gat nú ekki alveg útskýrt þetta fyrir mér þannig að ég skildi. Væri möguleiki að fá lýsingu á framkvæmdinni, er alveg orðin uppiskroppa með skemmtiefni fyrir skrílin hérna fyrir austan.
kveðja
Sigga Hrönn
Gaman að heyra frá þér Sigga Hrönn mín. Sendi þér þennan sniðuga leik á E-mail, er pabbi gamli ekki með netfangið þitt??
Post a Comment
<< Home