Dömubindi-bindi-indi-ndi-di-i...
Dömubindi geta verið nauðsynleg, jafnvel illnauðsynleg. Ef þið nennið ekki að heyra þessa dömubindis sögu mína skuluð þið bara hætta að lesa núna.
Ég lenti nefnilega í því leiðinda tilviki að bráð-nauðsynlega vanta þessi fínu rakatæki. En........þetta var um kvöld og búið að loka einu búðinni í Hveragerði, Bónus. Ég fór samt á rúntinn það kvöldið og í þriðju sjoppunni fann ég þessa nauðsynja vöru. Á uppsprengdu verði fann ég pakka af vörum sem ég hélt að væru aðeins seldar í Bónus, nefnilega Euroshopper dömubindi sem kostaði mig í kringum 450 kr. Daginn eftir fer ég svo í Bónus og finn samskonar pakka á 95 kr. Þvílíkt okur, ég á ekki til orð. Er viss um að sjoppueigandinn verslar í Bónus og selur svo með góðri álagningu í sinni sjoppu. Já það er eins gott að passa upp á mánaðardagana og vera búin að byrgja sig upp ætli maður að passa budduna!!!
En vissuð þið að það er líka hægt að kaupa bindi með rakaklútum!!! Já allt er nú fundið upp muahahahahahahahahahaha..........

3 Comments:
Það eru bara sumir hlutir sem við karlmenn þurfum ekki að vita né heyra um ... og já ég veit að ég hefði ekki átt að lesa þetta en forvitnin var skynseminni yfirsterkari
Það eru bara sumir hlutir sem við karlmenn þurfum ekki að vita né heyra um ... og já ég veit að ég hefði ekki átt að lesa þetta en forvitnin var skynseminni yfirsterkari
mikið er ég glöð að fá svona mörg blogg í röð. Þó svo að sú síðasta hafi verið um dömubindi... maður þarf nú ekki alltaf að tala um eitthvað sem aðrir vilja lesa :) :) :) hehe...
Kv. Tinna Rós, besta systir í heimi (líka sú eina þín ;)
Post a Comment
<< Home