Blómabærinn Hveragerði....
Átti bara alveg ágætis helgi, Blómstrandi dagar í Hveragerði og allt það. Eftir ágætis rölt í bænum fórum við í grillveislu og svo í brekkusöng með sjálfum Eyfa Kristjáns, ógurlegt stuð. Enduðum svo á blómaballi. Skil ekkert í því að hafa ekki verið valin blómadrottning, kenni því um að dómnefndin hafi ruglast á húsum þar sem nágrannakona mín varð fyrir valinu. Hefði líka kannski átt að mæta fyrr á ballið þar sem valið fór frekar snemma fram, man það næst. Mikið var samt gaman að hitta svo fullt af fólki sem maður sér annars ekki svona dags daglega. Alveg jafn leiðinlegt og vandræðalegt var að hitta fólk sem maður hefur einhvern tímann unnið með en man bara ekkert hvað heitir, eða þá fólk sem maður á kannski að kannast við en gerir það bara alls ekki....
Lífið er ljúft.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home