Tuesday, August 23, 2005

vinna vinna vinna

Þá er maður byrjaður aftur á fullu, gaman gaman. Mikill munur að vera að vinna í Hveragerði og þurfa ekki að keyra á Selfoss, sakna þess samt pínulítið að vera þar, alltaf erfitt að byrja á nýjum stað. Þurfti samt auðvitað að byrja á því að taka á móti nemendum með opna buxnaklauf, týpísk ég, tók ekki eftir því fyrr en ég var komin niður á kaffistofu...góð byrjun.

Annars hef ég ekki afrekað neitt miklu síðan ég bloggaði síðast , ég hef:
- farið nokkrar ferðir til Reykjavíkur og eytt peningum
- farið í barnaafmæli
- þóst vera góð húsmóðir ( gengur ekki alltaf vel)
- farið í sund með Fjölni Þorgeirs ( alltaf að hitta hann í sundi)
- mætt í vinnuna
- misst af saumaklúbb vegna heiftarlegrar magakveisu
- Horft á ástvin gera það sem mig grunaði ekki að hann ætti til og verið mjög svekkt yfir

Annars eru Blómstrandi dagar framundan og vonandi eitthvað húllumhæ í kringum það. Allavega verður brekkusöngur og skemmtilegheit og þar ætla ég ekki að láta mig vanta.

REYKINGAR DREPA!!!

2 Comments:

At August 24, 2005 1:05 PM, Anonymous Anonymous said...

hahahh....med opna buxnaklauf...se thig i anda. Krakkarnir eiga ekki eftir ad gleyma thessu i brad!
Sjaumst i desember!

 
At August 27, 2005 10:35 AM, Anonymous Anonymous said...

Góð byrjun á góðum vetri :-)

kv. Jónína

 

Post a Comment

<< Home