Brúðkaup og fleira
Jamm helgin liðin og síðasti dagur sumarfrísins að enda. Annars var helgin alveg stórgóð. Við fjölskyldan fórum í nýju sundlaugina í Kópavogi sem er alveg stórfín og ég mæli eindregið með henni, sérstaklega fyrir barnafólk. Á laugardaginn fórum við svo í brúðkaup Hildigunnar og Jónasar. Þetta var alveg ofsalega skemmtilegt brúðkaup og frábær veisla á Hótel Örk. Brúðhjónin slógu öllum veislugestum út, hvað varðar úthald, allavega var hálfpartinn farið að reka þau út af hótelinu að veislu lokinni og þá ætluðu þau bara á Snúllabar og halda áfram að skemmta sér þar. Meira hef ég svo ekki heyrt þar sem ég fór heim á undan þeim.
Er svo bara farin að hlakka til að mæta í vinnuna á morgun. Er orðin alveg skelfilega löt við að hanga svona heima allan daginn. Veit samt ekkert hvað ég á að gera við hann Daníel þessa viku þangað til hann fer í skólann....ætli ég endi ekki á því að taka hann með í vinnuna.
Lofaði sjálfri mér eftir Fimmvörðuhálsinn að nú skildi tekið á því og farið út að skokka a.m.k. annan hvern dag....he he he jeh wright!!!

1 Comments:
Var ekki nóg að labba þennan fimmvörðuháls, þarft ekki að skokka í langan tíma út af því :)
Post a Comment
<< Home