Monday, August 08, 2005

Fimmvörðuháls

Þá er ég orðin ein af þeim sem hafa gengið Fimmvörðuháls. Fórum sex saman á laugardaginn og það var mjög gaman. Skil vel að þetta sé vinsæl gönguleið enda alveg magnað landslag. Við fórum frá Skógum og vorum rétt um 8 tíma á leiðinni niður í Þórsmörk. Ég verð nú að viðurkenna að ég var pínu lúin þegar við komum niður. Fékk einhvern verk í mjöðmina á miðri leið svo það var frekar erfitt að labba upp á móti. En svona getur maður nú samt verið duglegur. Ber samt skálaverði sem við mættum á leiðinni ekki vel kveðjurnar. Hún sagði að það væri þvílíkt vont veður á leiðinni og við ættum ekkert að vera að þvælast þetta. Sagði að það tæki 6 tíma að labba upp að skálanum og 6 tíma niður aftur. Hún ráðlagði okkur að snúa við því það væri ekkert vit í að fara þetta núna, keðjurnar væru líka orðnar svo lélegar. Ef við héldum áfram ættum við bara að labba upp í skála og láta sækja okkur þangað. Sem betur fer hlustuðum við ekki á hana og héldum áfram. Það kom aldrei nein rigning nema rétt nokkrir dropar og þegar við komum niður í Þórsmörk var bara fínt veður. Biluð kelling.
Annars héldum við svo upp á afmælið hennar Jónínu í gær. Það var nú svolítið erfitt að standa upp úr rúminu í gærmorgun og fara að stússast í eldhúsinu en þetta tókst nú allt saman alveg ágætlega. Var svolítið stíf og stirð til að byrja með.
Svo er bara nóg að gera framundan, matarboð í kvöld og kaffihúsaferð með saumaklúbbnum á morgun, brúðkaup næstu helgi. Fullt að gera. Eins gott að nota tímann vel áður en vinnan byrjar í næstu viku.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home